Flýtilyklar
Velkomin(n)
- Við kennum nemendum að spila bæði eftir nótum og eftir eyranu. Einnig hljómalestur og útsetningar.
- Tónfræði er fléttað inn í námið í tengslum við það sem verið er að fást við hverju sinni, en ekki kennd sem
sér námsgrein.
- Nám í Tónræktinni hentar fólki á öllum aldri sem hefur áhuga á að leika á hljóðfæri, sér og öðrum til gagns og ánægju.
Nýjustu fréttir
-
Skólabyrjun haustönn 2011
Almennt - þriðjudagur 16.ágú.11 12:12 - Lestrar 139 - Athugasemdir (1)Námskeiðin á haustönn hefjast 12. sept haft verður samband við umsækjendur af vikomandi kennara
þegar nær dregur : )
-
góðan daginn
Almennt - þriðjudagur 9.ágú.11 17:50 - Lestrar 112 - Athugasemdir (0)Nú eru komnar nýjar myndi frá atburðum s.l. vor :)
-
Vortónleikar
Almennt - miðvikudagur 27.apr.11 18:35 - Lestrar 372 - Athugasemdir (8)Vortónleikar Tónræktarinnar verða að þessu sinni í Ketilhúsinu sunnudaginn 1. maí.
Þeir hefjast klukkan 14.00 og allir eru velkomnir.
Lokaæfing verður kl. 15.00 á laugardeginum 30. apríl á sama stað.
Tónleikarnir verða fjölbreyttir að venju og aðgangur er ókeypis.
Allir hjartanlega velkomnir,
kennarar og nemendur Tónræktarinnar.
-
Vorönn 2011
Almennt - þriðjudagur 4.jan.11 09:28 - Lestrar 608 - Athugasemdir (0)Kennsla hefst á vorönn mánudaginn þann 17. janúar. Við biðjum þá nemendur sem ekki hafa staðfest að þeir ætli að halda áfram, að senda okkur línu á tonraektin@tonraektin.is. Við reynum að halda sömu tímasetningum eins og hægt er, en framhaldsskólanemendur eru beðnir að láta vita um breytingar á stundaskrá. Kennarar munu hafa samband við nemendur áður en vorönn hefst.
Við óskum svo öllum gæfu og gengis á nýju ári og þökkum fyrir góða og skemmtilega samvinnu á liðnu ári.
Með kærri kveðju,
kennarar Tónræktarinnar
-
Jólatónleikar
Almennt - miðvikudagur 1.des.10 15:08 - Lestrar 661 - Athugasemdir (5)Þann 12. desember verða jólatónleikar Tónræktarinnar. Þeir verða á neðstu hæð í Amaróhúsinu og í tvennu lagi. Það er verið að koma þessu öllu heim og saman og nánari fréttir um tilhögun tónleikanna eru alveg á næst leiti, hér og á face-book síðu Tónræktarinnar. : )